Njóttu þess að ferðast um Ísland með Ferðagjöfina í símanum
Ef þú ætlar ekki að nota Ferðagjöfina, þá getur þú gefið hana áfram til einhvers sem þig langar til að gleðja og hvetja til að njóta. Um leið eykur þú líkurnar á að Ferðagjöfin skili sér og styrki ferðaþjónustuna.
Með því að hafa gjafabréfið í símanum þínum þarft þú ekki að hafa neinar áhyggjur af því að týna Ferðagjöfinni í skúffunni heima eða gleyma, því hún er alltaf með þér í símanum og tengd símanúmerinu þínu.
Góða skemmtun og njóttu Íslands